Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Íslenska fyrir útlendinga að byrja

Námskeið í íslensku fyrir útlendinga er að fara af stað víða á Vestfjörðum.

Í Bolungarvík, Flateyri og Suðureyri hófust námskeiðin miðvikudaginn 16. september. Þó námskeiðin séu hafin er enn hægt að bæta við þátttakendum. 

Á Ísafirði hefst námskeið fyrir Tælendinga föstudaginn 18. september kl. 17:00 og námskeið fyrir aðra byrjar fimmtudaginn 24. september kl. 18:00.  Á Patreksfirði hefst námskeið í síðustu viku septembermánaðar og verður nánari tímasetning auglýst síðar.

Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is