Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Jarðfræðinámskeið á nýjum stað

Miðvikudaginn 24. mars n.k. verður haldið stutt námskeið um jarðsögu Vestfjarða í máli og myndum. Námskeiðið átti upphaflega að vera í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar en verður þess í stað haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Ísafirði.

Á námskeiðinu mun Jón Reynir Sigurvinsson jarðfræðingur og skólameistari MÍ lýsa uppbyggingu berggrunnsins og helstu einkennum hans. Gerð verður grein fyrir landslagi og gróðurfari fyrir ísöld og þeim steingerðu plöntuleifum sem fundist hafa í jarðlögum. Lýst verður mótun landsins á ísöld og hvernig núverandi landslag varð smám saman til. Í lokin verða útskýrð nokkur jarðfræðifyrirbæri sem myndast hafa í dölum eftir ísöld.

Námskeiðið hefst kl. 20:00 og stendur í 2 tíma. Verð er 4.100 kr.

Tengt efni
Jarðsaga Vestfjarða í máli og myndum
Lýst er uppbyggingu berggrunnsins og helstu einkennum hans. Gerð er grein fyrir landslagi og gróðurfari fyrir ísöld og þeim steingerðu plöntuleifum sem fundist hafa í jarðlögum. Lýst verður mótun landsins á ísöld og hvernig núverandi landslag varð smám saman til. Í lokin verða útskýrð nokkur jarðfræðifyrirbæri sem myndast hafa í dölum eftir ísöld.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is