Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Kærleiksljós - námskeið 4. apríl

Laugardaginn 4. apríl kl. 11:00-16:00 gefst fólki kostur á að læra að gera fallega mósaik lampa undir handleiðslu Ólafar Davíðsdóttur listakonu.

image

Ólöf er að mestu sjálfmenntuð en hefur farið á fjölmörg námskeið og vinnur um þessar mundir mest í gler en auk þess hefur hún staðið fyrir stuttum námskeiðum í vinnustofu sinni í Gallerý Brák í Borgarnesi. Hún er frumkvöðull í endurvinnslu á gleri hér á landi og nýtir gjarnan það sem aðrir henda frá sér. Hún hefur haldið margar sýningar hér á landi og erlendis, bæði einkasýningar og í samstarfi við aðra listamenn.

Námskeiðið er á vegum Fræðslumiðstöðvarinna en haldið í húsakynnum Rammagerðar Ísafjarðar að Aðalstræti 16. Námskeiðsgjald er 9.000 kr. Hámarks fjöldi þátttakenda eru 8 og því mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Tengt efni
Kærleiksljós - mósaik lampar
Á námskeiðinu verða búnir til glæsilegir mosaik lampar. Allt efni innifalið í námskeiðsgjaldi. Hámarks fjöldi þátttakenda eru 8 manns og því mikilvægt að skrá sig tímanlega.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is