Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Konfektnámskeiði á Þingeyri frestað um viku

imageAf óviðráðanlegum orsökum þarf að fresta um viku námskeiði í konfektgerð sem auglýst var að ætti að vera á Þingeyri miðvikudaginn 3. nóvember. Námskeiðið verður þess í stað haldið miðvikudaginn 10 nóvember kl. 18:00-21:00 í húsakynnum Vísis.

Kennari á námskeiðinu er Halldór Karl Valsson matreiðslumeistari og mun hann kynna þátttakendum leyndardóma konfektgerðarinnar og kenna að gera 3-4 mismunandi konfektmola.

Það stefnir í góða þátttöku á námskeiðinu þannig að ef einhverjir áhugasamir hafa ekki skráð sig nú þegar er góð hugmynd að hafa samband við Fræðslumiðstöðina sem fyrst.

Tengt efni
Konfektgerð - Þingeyri
Þátttakendur kynnast leyndardómum konfektgerðarinnar og læra að gera 3-4 mismunandi konfektmola og taka með sér heim afraksturinn.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is