Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Færni í ferðaþjónustu I - síðustu forvöð að skrá sig!

Nú eru að verða síðustu forvöð að skrá sig í námið Færni í ferðaþjónustu I. Lokað verður fyrir skráningu 20. mars.

Færni í ferðaþjónustu I er 60 kennslustunda nám og er ein af vottuðum námsleiðum frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Fræðslumiðstöð atvinnulífisins veitir einnig styrk til kennslunnar, þannig að þátttökugjald verður einungis 10 þúsund krónur á mann.

Námið er ætlað starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni, t.d. sumarstarfsfólki.

Námsskráin verður kennd með svokölluðu dreifnámssniði, sem þýðir að blandað verður saman staðbundinni kennslu og fjarkennslu. Að námi loknu fá þátttakendur staðfestingu á náminu og er heimilt að meta það til allt að 5 eininga á framhaldsskólastigi.

Til að námið geti farið af stað þurfa að vera að lágmarki 10 þátttakendur. Því er mikilvægt að fólk skrái sig sem fyrst hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Nánari upplýsingar eru hér á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Námsskrána í heild sinni er að finna hér á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Tengt efni
Færni í ferðaþjónustu I
Nám sem er sniðið að fólki í ferðaþjónustu, sumarstarfólki og þeim sem nú þegar starfa í greininni. Í náminu er meðal annars fjallað um gildi ferðaþjónustu, grunnþætti í þjónustu, mismunandi þjónustuþarfir, þjónustulund og samskipti, vinnusiðfræði, hlutverk starfsmanna og verkferla á vinnustað. Hluti kennslunnar er verklegur. Kennt með styrk frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is