Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Kynning á námsbrautum EHÍ

Miðvikudaginn 6. maí klukkan 16:00 stendur Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir kynningu á námsbrautum sem boðið verður upp á í fjarnámi næsta haust. Kynningin verður í fjarfundi í húsnæði Fræðslumiðstöðvarinnar, að Suðurgötu 12, Ísafirði og eru allir velkomnir.  Þær námsbrautir sem kynntar verða eru:

Leiðsögunám á háskólastigi
Tveggja missera nám sem er kennt samhliða í staðnámi og fjarnámi með staðbundnum lotum.
Námið hentar þeim sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi með erlenda ferðamenn.
60 eininga (ECTS) nám sem er metið til eininga í nám í ferðamálafræði við líf- og umhverfisvísindadeild HÍ svo og við hugvísindadeild HÍ og viðurkennt sem aukagrein til BA/BS prófs. Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, starfsreynsla er að auki metin.
Nánari upplýsingar og skráning

Rekstrar- og viðskiptanám
Tveggja missera nám sem er kennt samhliða í staðnámi og fjarnámi.
Námið hentar þeim sem vilja öðlast þekkingu í rekstrar- og viðskiptafræðum. Námið er enn fremur fyrir þá sem þegar hafa háskólagráðu, BA eða BS, en hyggja á MS-nám í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
48 eininga (ECTS) nám sem er metið að fullu í viðskiptafræðideild HÍ. Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, starfsreynsla er að auki metin.
Nánari upplýsingar og skráning

Mannauðsstjórnun
Þriggja missera nám sem er kennt samhliða í staðnámi og fjarnámi.
Námið er annars vegar ætlað þeim sem sinna starfsmannamálum hjá fyrirtækjum og stofnunum og vilja dýpka þekkingu sína á viðfangsefninu og hins vegar þeim sem vilja búa sig undir starf á nýjum vettvangi.
36 eininga (ECTS) nám sem er metið inn í viðskiptafræðideild HÍ. Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, starfsreynsla er að auki metin.
Nánari upplýsingar og skráning

Málefni innflytjenda - nám á meistarastigi
Tveggja missera nám sem er kennt samhliða í staðnámi og fjarnámi með staðbundnum lotum.
Námið mun gagnast einstaklingum sem vinna með innflytjendum í sínum daglegu störfum víða í samfélaginu, sem og þeim sem hafa áhuga á málefninu og/eða vilja búa sig undir störf á nýjum vettvangi.
45 eininga (ECTS) nám sem er metið til eininga í meistaranám í lýðheilsuvísindum innan heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi á grunnstigi háskóla eða sambærilegu námi.
Nánari upplýsingar og skráning

Seinni umsóknarfrestur til 11. maí

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun.is og í síma 525 4444.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is