Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Kynning á raunfærnimati

24. janúar 2012
Fimmtudaginn 26. janúar n.k. verður kynning á raunfærnimat. Að kynningunni standa IDAN – fræðslusetur, Mímir – símenntun og Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Á fundinum munu náms – og starfsráðgjafarnir Iðunn Kjartansdóttir hjá IDUNNI og Sigríður Dísa Gunnarsdóttir hjá Mími kynna raunfærnimat. Kynning þeirra fer fram um fjarfundabúnað, en Björn Hafberg kollegi þeirra verður á staðnum, þeim til fulltingis og þátttakendum til aðstoðar.

Raunfærnimat er aðferð fyrir þá sem eru á vinnumarkaði til að fá færni sína, þekkingu og reynslu úr starfi metna til eininga í formlegu námi eða starfi. Raunfærnimat hefur verið þróað í flestum iðngreinum og nokkrum öðrum starfsgreinum. Listi yfir þessar starfsgreinar eru hér að neðan.

Inntökuskilyrði í raunfærnimat í iðngreinum er 25 ára lífaldur og 60 mánaða starf í faginu, staðfest með opinberum gögnum. Gangist einstaklingur undir raunfærnimat liggur fyrir hver staða hans er í viðkomandi grein og jafnframt hverju hann þarf að bæta við sig til að ljúka ákveðnu námi, t.d. iðnnámi þannig að hann geti gengist undir sveinspróf.

Inntökuskilyrði í verslunargreinum er 23 ára lífaldur og 3 ára starfsreynsla, í skrifstofugreinum, 25 ára lífaldur og 3 ára starfsreynsla og í vinnu með börnum á leikskóla eða í grunnskóla 25 ára lífaldur og 5 ára starfsreynsla.

Á fundinum verður almenn kynning á raunfærnimati, hvernig það fer fram, hvaða greinar það nær yfir og hvað tekur við að matinu loknu.
Kynningin verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði fimmtudaginn 26. Janúar n.k. og hefst kl. 20.

Kynningin er frí og öllum opin.

image
imageimage

Greinar í raunfærnimat.pdf

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is