Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Lærum þýsku

Þriðjudaginn 25. janúar n.k. hefst þýska I hjá Fræðslumiðstöðinni, námskeið fyrir fólk með lítinn grunn í þýsku eða þá sem hafa eitthvað lært en ekki notað málið mjög lengi. Námskeiðið er upplagt fyrir fólk í ferðaþjónustu og aðra þá sem hafa samskipti við þýskumælandi fólk og vilja fá grunn í málinu.  Farið verður í þýska málfræði og orðaforða en einnig fjallað um menningu og venjur í þýskumælandi löndum.  Áherslur á námskeiðinu taka mið af áhuga og þörfum þátttakenda.

Námskeiðið verður kennt á þriðjudögum kl. 18:00-20:00 og stendur yfir í 8 vikur. Kennari er Angela Schamberger og kostar námskeiðið 29.500 kr.

Rétt er að benda á það að stéttarfélög styrkja sína félagsmenn nánast undantekningalaust til þess að sækja tungumálanámskeið með því að endurgreiða hluta þátttökugjalda.

Það er von Fræðslumiðstöðvarinnar að þeir sem áhuga hafa á þýsku nýti sér þetta tækifæri því nú er nokkuð umliðið síðan síðast var haldið þýskunámskeið. 

image
Frá þýskunámskeið veturinn 2008.

Tengt efni
Þýska
Námskeið fyrir þá sem hafa lítinn grunn í þýsku. Upplagt fyrir fólk í ferðaþjónustu og aðra þá sem hafa samskipti við þýskumælandi fólk.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is