Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Listin að taka próf

Margir námsmenn kannast við þann kvíða sem fylgt getur því að taka próf. Fimmtudaginn 4. nóvember kl. 18:00 – 20:40 býður Fræðslumiðstöðin upp á námskeið sem kallast Að taka próf og vinna á prófkvíða. Námsmenn eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri ef það má verða til þess að auðvelda próftöku.

Á námskeiðinu verður fjallað um mismunandi gerðir prófa s.s. ritgerða/ krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Skoðaðar verða mismunandi aðferðir við prófundirbúning s.s. lestraraðferðir, tímaskipulagningu og sjálfsmat m.a. með vinnu við kortlagningu hvers og eins í gegnum svokallaðan námshring. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum. 

Námskeiðið getur hentað nemendum í efstu bekkjum grunnskóla, í framhaldsskóla eða í háskólanámi. Kennari er Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi. Námskeiðið er haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar, að Suðurgötu 12, Ísafirði og kostar 1.000 kr. 

Tengt efni
Að taka próf og vinna á prófkvíða
Fjallað verður um mismunandi gerðir prófa s.s. ritgerða/ krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is