Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Lokahóf íslenskunema á Patreksfirði

Námskeiðinu Íslenska fyrir útlendinga á Patreksfirði lauk miðvikudaginn 25. mars sl.  Í tilefni af því var haldið lokahóf í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði og var 100% mæting.

Ellefu nemendur hafa stundað íslenskunám á Patreksfirði í vetur og níu nemendur voru skráðir á íslenskunámskeið á Bíldudal, samtals tuttugu í Vesturbyggð.
Ekki tókst að hafa íslenskunámskeið á Tálknafirði í vetur en að sjálfsögðu verður gerð önnur tilraun til þess næsta haust.

Í lokahófinu var borðaður nýveiddur patreksfirskur steinbítur, eldaður með gleði og ýmsu góðgæti.  image

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is