Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Margir vildi fræðast um sálrænan stuðning

Laugardaginn 24. október s.l. stóð Rauði krossinn í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir námskeiði á Ísafirði um sálrænan stuðning. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru þær Auður Ólafsdóttir og Harpa Guðmundsdóttir.

Námskeiðið þótti takast vel í alla staði. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum, en alls voru 28 manns sem sóttu námskeiðið.  Ekki var annað að heyra á þátttakendum en þeir færu ánægðir heim að námskeiði loknu og margs vísari um sálrænan stuðning.

Það kom vel í ljós að töluverður áhugi er á þessu efni og eru Rauði krossinn og Fræðslumiðstöðin með í skoðun að bjóða upp á annað svona námskeið á vormisseri.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is