Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Markaðsmál og almannatengsl

Gústaf Gústafsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Verkalýðsfélag Vestfirðinga, stendur fyrir námskeiði ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti.

Tilgangur námskeiðsins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum. Markmiðið er að auka skilning á þeim leiðum sem best nýtast auk þess að fjalla um verkefni sem hafa náð framúrskarandi árangri hér á landi.

Á námskeiðinu er leitast við að svara eftirfarandi spurningum ásamt mörgum öðrum og að auki skoða raunveruleg dæmi:

  • Hvað eru markaðsmál?
  • Hvernig er hægt að nýta almannatengsl til að ná árangri?
  • Hvað eru samhæfð markaðssamskipti?
  • Hvaða máli skiptir ímynd?
  • Hvaða áhrif hefur vörumerki?

Léttur hádegisverður og gagnamappa innifalin í verði.

Eftirfarandi dagsetningar eru í boði og er hvert námskeið 4,5 tímar (7 kennslustundir):

  • 5. nóvember, laugardagur kl. 10-15.30
  • 8. nóvember, þriðjudagur kl. 10-15.30

Námskeiðið fer fram á Hótel Ísafirði og kennari er Gústaf Gústafsson forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Gústaf í síma 662-4156 eða í gegnum tölvupóst á netfangið .

Tekið er við skráningum hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025 og á vef miðstöðvarinnar frmst.is.

Vakin er athygli á því að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna námskeiða.

Tengt efni
Markaðsmál og almannatengsl
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvarinnar og Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is