Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Mat- og kryddjurtir

Laugardaginn 24. apríl n.k. verður haldið námskeið um mat- og kryddjurtir í Fræðslumiðstöðinni. Mikill áhugi hefur verið á ýmiskonar garðrækt undanfarin misseri og gefst hér upplagt tækifæri til þess að bæta við þekkingu sína á því sviði.

Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um sáningu, ræktun og umönnun mat- og kryddjurta. Farið verður yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá mat- og kryddjurtir og hvernig best er að verjast þeim. Fjallað verður um nýtingu jurtanna og geymsluaðferðir og fara þátttakendur heim með gómsætar uppskriftir og góðar hugmyndir.

Kennari á námskeiðinu er Auður Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn. Hún var með samskonar námskeið fyrir Fræðslumiðstöðina á Patreksfirði síðasta vor og þótti það takast mjög vel.

Námskeiðið er haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 á Ísafirði og stendur frá kl. 11:00 til 15:00. Verð er 9.900 kr.

Tengt efni
Mat- og kryddjurtir
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um sáningu, ræktun og umönnun mat- og kryddjurta. Farið verður yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá mat- og kryddjurtir og hvernig best er að verjast þeim. Fjallað verður um nýtingu jurtanna og geymsluaðferðir.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is