Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Meistaragreinar

Fræðslumiðstöð Vestfjarða mun í vetur kenna námskeið sem hægt verður að meta inn í nám til iðnmeistaraprófs (meistaraskóla). Kennd verða námskeið sem samsvara áföngum sem allir meistaranemar þurfa að taka, nema Tölvunotkun (TÖL 103). Kennslan verður í samstarfi við Meistaraskóla Tækniskólans og er í framhaldi af námsskránni Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum sem kennd var veturinn 2009 - 2010 í samvinnu við Menntaskólann á Ísafirði.
Hægt er að skrá sig hér þar sem nánari upplýsingar eru einni að finna.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is