Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Melrakkinn sem auðlind

Náttúrutengd ferðaþjónusta nýtur mikilla vinsælda á Vestfjörðum eins og annars staðar. Fimmtudaginn 15. apríl n.k. kl 20:00-22:00 stendur Fræðslumiðstöðin fyrir námskeiðinu Melrakkinn sem auðlind í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.  Boðið var upp á sams konar námskeið síðasta vor og þótti það heppnast vel.

Á námskeiðinu verður fjallað um melrakkann sem auðlind sem hægt er að virkja og nýta í sjálfbærri náttúrulífsferðamennsku á Íslandi.  Fjallað verður um tegundina sem slíka, sérstöðu hennar og einkenni, líffræði og útbreiðslusögu. Þá verður farið í hvar dýrin er helst að finna, vísbendingar um ferðir þeirra, hegðun og útlit, einkenni og „týpur“. Fjallað verður um hvernig ber að umgangast villta refi og hvað ber að varast. Að lokum verður farið yfir gildandi lög og reglur um villt dýr í náttúru Íslands.

Námskeiðið ætti að höfða bæði til þeirra sem hafa áhuga á dýralífi og náttúru og einnig þeirra sem eru í ferðaþjónustu.

Leiðbeinandi er Ester Rut Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Melrakkasetur og verð er 4.100 kr.

Tengt efni
Melrakkinn sem auðlind
Fjallað verður um melrakkann sem auðlind sem hægt er að virkja og nýta í sjálfbærri náttúrulífs ferðamennsku. Fjallað verður um tegundina sem slíka, sérstöðu hennar og einkenni, líffræði og útbreiðslusögu, hvar dýrin er helst að finna, vísbendingar um ferðir þeirra, hegðun og útlit, einkenni og „týpur“. Þá verður farið í hvernig ber að umgangast villta refi og hvað ber að varast. Að lokum verður farið yfir gildandi lög og reglur um villt dýr í náttúru Íslands.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is