Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Mígreni og átraskanir - tvær námstefnur frá EHÍ

Endurmenntun HÍ býður upp á tvær námstefnur á heilbrigðissviði í fjarfundi ef næg þátttaka fæst.

Þriðjudaginn 28. apríl kl. 9:00-16:00 verður námstefna um mígreni. Námstefnan er einkum ætluð fagfólki á heilbrigðis- og félagssviði en er opin öllum áhugasömum. Markmið hennar er að veita þátttakendum aukna þekkingu á greiningu og meðferð mígrenis. Lýst verður einkennum mígrenis og mismunandi birtingarformum. Helstu meðferðarmöguleikar verða kynntir og fjallað um nýjungar á því sviði. Kennari er Jón Hersir Elíasson, sérfræðingur í taugalækningum ásamt fleirum. Þátttökugjald er 22.900 kr.

Miðvikudaginn 6. maí kl. 8:30-16:00 verður námstefna um átraskanir. Námstefnan er opin öllum, bæði fagfólki og öðrum sem telja sig málefnið varða á einhvern hátt. Markmið hennar er að opna umræðu um sjúkdóminn, veita fræðslu um hann og gefa fólki kost á að spyrja spurninga. Kennari er Helga Þórðardóttir, félagsfræðingur og fjölskylduráðgjafi. Þátttökugjald er 16.500.

Mikilvægt er að skrá sig tímanlega þar sem lágmarksþátttöku þarf til þess að hægt verði að bjóða námstefnurnar í fjarfundi.

Tengt efni
Mígreni - námstefna í fjarfundi frá EHÍ
Markmið námstefnunnar er að veita þátttakendum aukna þekkingu á greiningu og meðferð mígrenis. Lýst verður einkennum mígrenis og mismunandi birtingarformum. Helstu meðferðarmöguleikar verða kynntir og fjallað um nýjungar á því sviði.
Átraskanir - námstefna í fjarfundi frá EHÍ
Markmið námstefnunnar er að opna umræðu um sjúkdóminn, veita fræðslu um hann og gefa fólki kost á að spyrja spurninga. Námstefnan er opin öllum, bæði fagfólki og öðrum sem telja sig málefnið varða á einhvern hátt.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is