|
||||
|
|
Blöðungi með námskeiðum marsmánaðar hefur verið dreift í hús á norðanverðum Vestfjörðum.
Þar eru auglýst námskeiðin Góðaveislu gjöra skal (4 kst), Spænska fyrir byrjendur (24 kst), Almenn skyndihjálp (10 kst), Tölvan sem vinnutæki (15 kst), Virðisaukaskattur, færslur og skil (9 kst), Jarðsaga Vestfjarða í máli og myndum (3 kst) og Þjónustustjórnun (15 kst).
Auk þess er minnt á að Björn Hafberg náms– og starfsráðgjafi verður til viðtals í Fræðslumiðstöð Vestfjarða dagana 22. – 26. mars n.k. Meðal þess sem náms– og starfsráðgjafi gerir er að veita upplýsingar um námsleiðir og störf, aðstoða við að kanna áhugasvið og útbúa námsáætlun. Er fólk hvatt til að nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa, sem er því að kostnaðarlausu. Tekið við pöntunum í síma 456 5025.