Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Nám fyrir fólk í ferðaþjónustu

Eins og síðastliðið vor býður Fræðslumiðstöðin nú upp á nám fyrir fólk í ferðaþjónustu í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestfjarða. Um er að ræða tvö námskeið, Færni í ferðaþjónustu I sem er 60 kennslustundir og Færni í ferðþjónustu II sem er 100 kennslustunda sjálfstætt framhald af því fyrra.

Þessi námskeið eru kennd samkvæmt námsskrám frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Kennt verður virka daga kl. 9:00-16:00. Fyrra námskeiðið hefst mánudaginn 2. maí og það síðara fimmtudaginn 11. maí.

Færni ferðaþjónustu I skiptist í eftirfarandi námsþætti:

NámsþátturKennslust.
Kynning og námsvinnubrögð2
Gildi ferðaþjónustu6
Þjónusta – grunnþættir6
Vinnusiðferði og hlutverk starfsmanns3
Mismunandi þjónustuþarfir8
Þjónustulund og samskipti10
Að þróast í starfi2
Verkferlar á vinnustað10
Sérhæfing, samfélags- og staðarþekking4
Sérhæfing, þjónusta4
Námslok og mat2
Samtals60

Færni í ferðaþjónustu II skiptist í eftirfarandi námsþætti:

NámsþátturKennslust.
Kynning og námsvinnubrögð3
Sjálfsþekking og sveigjanleiki4
Tjáning og framkoma6
Vinnubrögð og vinnuvernd7
Tungumál10
Tölvur og upplýsingatækni10
Vinnustaðurinn6
Varan og viðskiptavinurinn7
Umhverfismál og ferðaþjónusta7
Val um sérsvið40
Samtals100



image
Hópurinn sem kláraði Færni í ferðaþjónustu I vorið 2010.

Tengt efni
Færni í ferðaþjónustu I
Nám sem er sniðið að fólki í ferðaþjónustu, sumarstarfólki og þeim sem nú þegar starfa í greininni. Í náminu er meðal annars fjallað um gildi ferðaþjónustu, grunnþætti í þjónustu, mismunandi þjónustuþarfir, þjónustulund og samskipti, vinnusiðfræði, hlutverk starfsmanna og verkferla á vinnustað.
Færni í ferðaþjónustu II
Sjálfstætt framhald af Færni í ferðaþjónustu I. Meðal námsþátta eru tungumál, tölvur, tjáning og framkoma, vinnubrögð og vinnuvernd, umhverfismál í ferðaþjónustu, samfélags– og staðarþekking, fyrsta hjálp, val um sérsvið og lokaverkefni.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is