|
||||
|
|
Þessa dagana eru staddir hjá Fræðslumiðstöðinni þeir Jón Einar Haraldsson (Lambi) og Sturla Kristjánsson en þeir félagar hafa að miklu leyti séð um að kenna námsskrá sem kallast Aftur í nám og er sérstaklega ætluð lesblindum. Hægt er að fá viðtal við þá og kynningu á þeim úrræðum sem þeir hafa upp á að bjóða með því að hafa samband við Fræðslumiðstöðina í síma 456 5025.
Námsskráin Aftur í nám, sem gefin er út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, eru 95 kennslustunda nám ætlað þeim sem komnir eru af unglingsaldri og glíma við lestrar– og skriftarörðugleika. Tilgangur námsins er að þjálfa námsmenn í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis og efla sjálfstraust þeirra. Auk Ron Davis þjálfunar er farið í sjálfstyrkingu, íslensku og tölvu– og upplýsingatækni. Bæði er um að ræða einstaklings– og hópkennslu.
Fræðslumiðstöðin bauð upp á þessa námsskrá á síðasta ári og tókst vel til. Fyrirhugað er að bjóða hana aftur, byrja nú í vor og klára í haust.