Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náms- og starfsráðgjöf í maí

Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur gert samning við Fræðslumiðstöð atvinulífsins um náms- og starfsráðgjöf: Hefur miðstöðin tímabundið fengið Björn E Hafberg náms- og starfsráðgjafi til að annst ráðgjöfina. Björn hefur verið á Ströndum og Vesturbyggð í vetur. Björn fer í fyrirtæki og kynnir ráðgjöfina og býður fólki upp á einstaklingsviðtöl. Hafa þau verið velsótt.

Nú í maí er dagskráin hjá Birni þessi:

• Föstudagur 11. maí. Bíldudalur.
• Laugardagur 12. maí. Tálknafjörður og Patreksfjörður.
• Þriðjudagur 15. maí. Hólmavík.
• Miðvikudagur16. maí. Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Súðavík
• Fimmtudagur 17. maí (Uppstigningadagur). Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Súðavík.
• Þriðjudagur 22. maí og miðvikudagur 23. maí. Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Súðavík.
• Fimmtudagur 24. maí og föstudagur 25. maí. Reykhólahreppur.

Fólk er hvatt til að nýta sér þessa þjónustu hafi það hug á að kanna námsöguleika, fara í nám, skipta um starf eða finna út nám við hæfi. Einnig ef það vill taka áhugasviðspróf. Ennfremur ef fólk vill fá ráðleggingar um greiningar á lesblindu eða öðrum námshamlandi fyrirbærum.

Tímapantanir fyrir einstaklingsviðtölin eru hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456 5025, eða netfanginu frmst@frmst.is

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is