|
||||
|
|
Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi verður til viðtals hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða dagana 4. – 7. maí n.k.
Meðal þess sem náms– og starfsráðgjafi gerir er að veita upplýsingar um námsleiðir og störf, aðstoða við að kanna áhugasvið og hæfni og útbúa námsáætlun.
Fræðslumiðstöðin hvetur áhugasama til að nýta sér þessa þjónustu.
Viðtöl eru fólki að kostnaðarlausu og er tekið við pöntunum í síma 456 5025.