Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námsaðstoð

Í apríl verður boðið upp á námsaðstoð fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum framhaldsskóla. Þetta kemur í framhaldi af því Fræðslumiðstöðin fær við og við fyrirspurnir um hvort og hvar boðið sé upp á slíka aðstoð.

Ekki er um eiginlega kennslu að ræða heldur fá nemendur aðstoð í því námsefni sem þeir eru að vinna að í skólanum hverju sinni. Gert er ráð fyrir að lágmarki 8 í hóp, en hver og einn er þó að vinna í sínu efni.

Boðið verður upp á aðstoð í ensku, dönsku og íslensku á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00-19:00 og í stærðfræði á þriðjdögum og miðvikudögum kl. 17:00-19:00. Verð fyrir hvert skipti er 3.500 kr.

Fyrsti tíminn er fyrirhugaður mánudaginn 12. apríl. Mikilvægt er að þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu hafi samband við Fræðslumiðstöðina þar sem ekki verður farið af stað nema lágmarksþátttaka náist. 

Tengt efni
Námsaðstoð - stærðfræði
Í boði er aðstoð í stærðfræði. Gert er ráð fyrir nokkrum í hóp en nemendur geta verið mislangt komnir í náminu. Ekki er um eiginlega kennslu að ræða heldur fá nemendur aðstoð í því námsefni sem þeir eru að vinna að í skólanum hverju sinni.
Námsaðstoð - íslenska, enska
Í boði er aðstoð í íslensku og ensku. Gert er ráð nokkrum í hóp en nemendur geta verið mislangt komnir í náminu. Ekki er um eiginlega kennslu að ræða heldur fá nemendur aðstoð í því námsefni sem þeir eru að vinna að í skólanum hverju sinni.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is