Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið á Patreksfirði um viðhald og endurbætur eldri húsa

Dagana 5. og 6. desember nk. mun Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við Húsafriðunarnefnd og VerkVest halda námskeið á Patreksfirði um endurbætur og viðhald eldri timbur- og steinhúsa.  Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöður og burðarvirki eldri timburhúsa. Farið er yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul hús sem hefur verið gert við og hús sem þarfnast viðgerða. Einnig er farið yfir undirbúning viðgerða, sögu og þróun húsbygginga á Íslandi. 
Ávinningur:

  • Lögð er áhersla á að gert sé við gömul hús með sömu aðferðum og frágangi og þegar þau voru byggð á sínum tíma.
  • Þátttakendur fá góða yfirsýn á það hvernig gömul hús voru byggð.
  • Þátttakendur fá dýrmæta þekkingu sem nýtist til viðgerða og endurbóta gamalla húsa.

Tengt efni
Viðhald og endurbætur eldri timbur- og steinhúsa - Patreksfjörður
Dagana 5. og 6. desember nk. mun Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við Húsafriðunarnefnd og VerkVest halda námskeið á Patreksfirði um viðhald og endurbætur eldri húsa. Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöður og burðarvirki eldri timburhúsa. Farið er yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul hús sem hefur verið gert við og hús sem þarfnast viðgerða. Einnig er farið yfir undirbúning viðgerða, sögu og þróun húsbygginga á Íslandi.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is