Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið fyrir eldri borgara tókst vel

Undanfarnar vikur hefur hópur eldri borgara sótt námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni sem kallast Arfur kynslóðanna. Jóna Símonía Bjarnadóttir sagnfræðingur leiddi fólk í allan sannleikann um hvernig á að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita. Farið var í heimsókn í Safnahúsið þar sem meðal annars var kynnt hvernig bréf, myndir, dagbækur og önnur gögn eru varðveitt.

Í lok námskeiðs stóð þátttakendum svo til boða að fá kennslu á tölvur þar sem farið var í helstu aðgerðir sem hægt er að nota til að setja texta upp á fallegan hátt.

Námskeið þetta var liður í norrænu verkefni sem Fræðslumiðstöðin er þátttakandi í og fjallar um símenntun fyrir eldri borgara.  Það var ekki annað að heyra á þátttakendum en þeir væru mjög ánægðir með námskeiðið og er Fræðslumiðstöðin að skoða möguleika á að endurtaka það og þá jafnvel á öðrum stöðum á Vestfjörðum.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is