Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið í stefnumótun

Námskeið í stefnumótun verður haldið fimmtudaginn 23. október nk. kl. 10:00-16:30. Á námskeiðinu verður huga að því hvað stefnumótun er og hvaða gagn er hægt að hafa af slíkri vinnu. Kynnt verður hagnýt aðferð við mótun stefnu sem hefur sýnt sig að gagnast vel í skipulagsheildum af öllum stærðum og gerðum. Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur fari heim með tól sem þeir geta þegar tekið að nýta, hvort sem er í vinnunni eða félagsstarfi. Námskeiðið ætti að höfða til allra þeirra sem taka þátt í stjórnun fyrirtækja og stofnana en ekki síður félagasamtaka. Kennari er Haraldur Tryggvi Flosason framkvæmdastjóri Viðskiptablaðsins.

Tengt efni
Stefnumótun - hagnýt aðferð
Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur hagnýtri aðferð við stefnumótun hverslags skipulagsheilda.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is