Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið í Vesturbyggð og Tálknafirði

4.3.2008
V-Barð
Nú er verið að dreifa auglýsingu frá Fræðslumiðstöðinni í hús í Vesturbyggð og á Tálkanfirði. Verið er að auglýsa námskeið í TOK launakerfinu og TOK bókhaldskerfinu. Þessi námskeið verða haldin dagana 11. og 12. mars 2008 á Patreksfirði. Þá er verið að kanna áhuga fyrir námskeiði er kallast Úr mínus í plús og fyrir námsskeiði um fjárfestingar og hlutabréf.  Hugmyndin er að halda þessi námskeið í maí en það fer eftir þátttöku hvort það verður hægt.

Á Tálknafirði er nýlokið Excel námskeiði fyrir starfsfólk sveitarfélagsins og á Bíldudal er að ljúka tölvunámskeiði. Leiðbeinendi á Tálknafirði var Ingimundur Óðinn Sverrisson og á Bíldudal Ásdís Snót Guðmundsdóttir.

Þessa auknu starfssemi á svæðinu má þakka Maríu Ragnarsdóttur, hinum nýráðna starfsmanni Fræðslumiðstöðvarinnar á Patreksfirði.

Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður í Vesturbyggð og Tálknafirði fimmtudaginn 6. mars til laugardagins 6. mars n.k.
Björn heimsækir fyrirtæki og stofnanir og býður fólki einstaklingsráðgjöf. Þessi þjónusta er fólki að kostnaðarlausu, vegna þess að menntamálaráðuneytið syrkir fræðslu- og símenntunarmiðstöðvarnar til að vera með svona ráðgjafarstarf út um allt land.

Tengt efni
TOK á Patreksfirði
Námskeið í TOK launakerfinu og TOK bókhaldskerfinu. Með TOK launakerfinu einfaldar þú útreikning launa. Hægt er að nota launakerfið fyrir starfsmenn á tímakaupi og mánaðarlaunum sem og fyrir eigendur fyrirtækja sem greiða reiknað endurgjald. TOK er algengasta bókhaldskerfið hjá smærri fyrirtækjum á Íslandi. Þúsundir fyrirtækja um land allt nota TOK daglega til að halda utan um bókhaldið sitt.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is