Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið um jurtir og náttúrulækningar á Hólmavík

Mánudaginn 20. júní verður haldið námskeið um jurtir og náttúrulækningar. Námskeiðið fer fram á Ströndum eða í Reykhólasveit, eftir því hvar þátttaka næst, en Fræðslumiðstöðin gengur að jafnaði út frá því að lágmarksþátttaka á námskeiðum sé átta manns.

Á jurtanámskeiðinu verður þátttakendum kennt að þekkja plöntur sem nýttar eru sem tejurtir eða til lækninga. Farið verður yfir útlit plantna og síðan farið í vettvangsferð. Í vettvangsferðinni safna þátttakendur plöntum og læra um leið að þekkja þær og hvernig gott er að bera sig að við söfnunina. Þá verður farið yfir hvaða aðferðir eru bestar til að geyma plöntur og plöntuhluta, hvaða tæki er helst að nota og fleira því tengt.

Það er Hafdís Sturlaugsdóttir hjá Náttúrustofu Vestfjarða sem kennir á námskeiðinu, en hún hefur sérhæft sig í gróðri og landnýtingu og kenndi til að mynda hluta áfangans gróður og dýralíf í svæðisleiðsögunámi sem nýlega lauk hjá Fræðslumiðstöðinni.

Fræðslumiðstöðin vill gjarnan nýta sér bættar samgöngur milli Stranda, Saurbæjar og Reykhólasveitar með því að halda sameiginlega námskeið fyrir þessi svæði. Þannig hafa til dæmis starfsmenn á Fellsenda í Dalabyggð nýtt sér fagnámskeið fyrir heilbrigðisstéttir á Hólmavík. Námskeiðið fór fram á síðasta ári og keyrðu umræddir starfsmenn þrettán sinnum til Hólmavíkur á sex vikum til að taka þátt.

Tengt efni
Jurtir og náttúrulækningar - Hólmavík
Á námskeiðinu verður þátttakendum kennt að þekkja plöntur sem nýttar eru sem tejurtir eða til lækninga.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is