Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið um styrkumsóknir

Námskeið um styrkumsóknir var fyrirhugað að hefja mánudaginn 22. september á Ísafirði og fjarkennt til Hólmavíkur. En vegna beiðni var því frestað um viku. Verður það því mánudaginn 29. september, miðvikudaginn 1. og föstudaginn 3. október kl. 20 - 22.
Markmið með námskeiðinu er að gera þátttakendur hæfari í að skrifa styrkumsóknir og auka þekkingu þeirra á þeim sjóðum sem hægt er að sækja styrki til. Getur verið erfitt að átta sig á þeirri flóru sjóða sem hægt er að sækja styrki í og mikilvægt er að umsóknir séu rétt útfylltar til að auka líkurnar á því að fá styrki.
Þetta er námskeið sem kemur að góðum notum.

Tengt efni
Styrkumsóknir - Fjarkennt frá Ísafirði til Hólmavíkur
Fjallað um hvernig á að skrifa stykrumsóknir og hvað einkennir góðar umsóknir, hvernig umsóknir eru metnar og hvaða sjóðir eru í boði.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is