Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeiðið Skipulögð kennsla hefst kl 12.30

Vegna þess að ekki var flogið á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar í dag, hefst námskeiðið Skipulögð kennsla ekki fyrr en klukkan 12.30 á morgun, miðvikudag 23. janúar. Námskeiðið átti annars að hefjast klukkan 09. Það verður kennt hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði.

Námskeið er kennt af Ráðgjafar og greiningarstöð ríkisins og sjá þær Áslaug Melax, Sigrún Hjartardóttir og og Svanhildur Svavarsdóttir um kennsluna. Þær eru allar sérkennarar með framhaldsnám í fræðunum.

Mámskeiðið er byggt á hugmyndafræði TEACCH kerfisins. Það er ætlað þeim sem hafa lokið grunnnámskeiði um einhverfu, og eru aðstandendur eða starfa með börnum og ungmennum með einhverfu, í skólum og á sambýlum, eða hvar sem einstaklingar með einhverfu búa og starfa.

Tengt efni
Skipulögð kennsla
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið grunnnámskeiði um einhverfu, og eru aðstandendur eða starfa með börnum og ungmennum með einhverfu, í skólum og á sambýlum, eða hvar sem einstaklingar með einhverfu búa og starfa.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is