Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námsstefna um hjarta- og æðasjúkdóma

Fimmtudaginn 26. mars n.k. kl. 9:00-15:45 stendur Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir námsstefnu um hjarta- og æðasjúkdómar og verður hún einnig í boði í fjarfundi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða ef næg þátttaka fæst. Námsstefnan er einkum ætluð fagfólki á heilbrigðissviði. Þátttökugjald eru 19.900 kr. á mann. Ef fimm eða fleiri þátttakendur koma frá sama greiðanda er veittur 20% afsláttur. Einstaklingar eru hvattir til að kanna möguleika á endurgreiðslu hluta þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi.

Dagskrá námsstefnunnar er eftirfarandi:

  • 09:00 - 09:10 Námsstefnan sett. Hanna S Ástvaldsdóttir
  • 09:10 - 09:35 Hjartað. Hanna S Ásvaldsdóttir Ms. lífeindafr. og perfusionisti á hjarta-og lungnaskurðdeild á LSH.
  • 09.35 - 10:00 Rannsóknir til greininga hjartasjúkdóma. Guðrún Reimarsdóttir yfirlífeindafræðingur á hjartarannsókn á LSH

Kaffi

  • 10:15 - 10:40 Vefjameinafræði hjartasjúkdóma. Lárus Jónasson, sérfræðingur í vefjameinafræði á LSH
  • 10:40 - 11:10 Meingerð og meinþróun æðakölkunar. Guðmundur Þorgeirsson, sérfæðingur á LSH
  • 11:10-11-35 . Ragnar Daníelsen, sérfræðingur á LSH
  • 11.35-12.00 Kransæðahjáveita. Líney Símonardóttir Ms. lífeindafr. og perfusionisti á hjarta- og lungnaskurðdeild LSH

Matarhlé

  • 13:00 -13:30 Þróun kransæðasjúkdóma og áhættuþátta. Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar
  • 13:30 -14:00 Myndgreining hjarta- og æðakerfis í hóprannsóknum Hjartaverndar. Sigurður Sigurðarson, geislafræðingur í Hjartavernd
  • 14:00 -14:30 Notkun hjartaensíma við mat á áhættu á kransæðasjúkdómi. Ingunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur hjá Hjartavernd

Kaffi

  • 14:45 -15:15 Árangur í baráttu við blóðfitur eins helsta áhættuþáttar kransæðasjúkdóms. Bolli Þórsson, innkirtlasérfræðingur hjá Hjartavernd
  • 15:15 -15:45 Breytingar í áhættuþáttum og meðferð. Áhrifaþættir til fækkunar á dauðsföllum vegna hjartasjúkdóma. Thor Aspelund tölfræðingur hjá Hjartavernd

Þar sem lágmarksþátttöku þarf til þess að hægt sé að bjóða upp á námsstefnuna í fjarfundi hjá Fræðslumiðstöðinni er mikilvægt að áhugasamir skrái sig sem fyrst. Tekið er við skráningum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. 

Tengt efni
Hjarta- og æðasjúkdómar - námsstefna í gegnum fjarfundabúnað frá EHÍ.
Námsstefnan er í gegnum fjarfundabúnað frá EHÍ og einkum ætlað fagfólki á heilbrigðissviði. Fjallað verður um hjartað - bæði heilbrigt og sjúkt - með aðaláherslu á kransæðasjúkdóma. Fjallað verður um rannsóknir til greininga hjartasjúkdóma og meðferðarúrræði fyrir kransæðasjúklinga.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is