Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námstækni – betri árangur og meiri frítími

Góð námstækni getur skipt sköpum fyrir árangur í námi. Námstækni er að læra að vinna skipulega, að gera ákveðna hluti á tilteknum tíma og skipuleggja tíma sinn svo skil verði á milli vinnu og frítíma.

Fræðslumiðstöðin býður upp á námskeið í námstækni fimmtudaginn 22. september n.k. kl. 18:00-22:00. Á námskeiðinu mun Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi meðal annars fjalla um aðferðir við skimun texta og gerð útdrátta, og vera með stutta kynning á hugarkortum við glósugerð.

Námskeiðið er ætlað öllum námsmönnum, hvort sem þeir eru í menntaskóla, háskóla eða utan hins formlega skólakerfis, sem vilja ná betri tökum á skipulögðum vinnubrögð í námi með það að markmiðið að draga úr streitu, skapa meiri frítíma og bæta árangur.

Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði. Verð er 1.000 kr. Tekið er við skráningum í gegnum vef Fræðslumiðstöðvarinnar og í síma 456 5025.

Tengt efni
Námstækni - Ísafjörður
Námskeið fyrir alla námsmenn. Á námskeiðinu verður farið í aðferðir við skimun texta og gerð útdrátta, og stutt kynning á hugarkortum við glósugerð.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is