Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Niðurstöður raunfærnimats

Mánudaginn 15. júní 2009 voru 14 þátttakendum í raunfærnimati á norðanverðum Vestfjörðum afhentar niðurstöður matsins. Hafði fólkið gengið undir raunfærnimatið hjá Iðunni – fræðslusetri í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Menntaskólann á Ísafirði.

Raunfærnimatið er tilraunverkefni, sem staðið hefur yfir undanfarin misseri hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífisins. Iðunni – fræðslusetri og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins hafa annast matið. Raunfærnimatið nær til fólks sem hefur hafið nám í iðngrein og starfar við greinina án þess að hafa lokið sveinsprófi.

Ætli fólkið að ljúka iðnnámi fær það með raunfærnimatinu kunnáttu og færni sína metna á móti einingum í iðnnáminu.

Alls ganga 18 einstaklingar undir raunfærnimatið á norðanverðum Vestfjörðum að þessu sinni. Í vor luku matinu þátttakendur úr húsasmíði, pípulögnum, vélvirkjun, blikksmíði og hársnyrtiiðn. Þátttakendur í bíliðngreinum og múrverki munu gangast undir raunfærnimat í haust.

Allir þátttakendur stefna að því að ljúka iðnnámi í framhaldi raunfærnimatsins. Faggreinar munu húsasmíðanemar og vélvirkjar taka við Menntaskólann á Ísafirði, en aðrir verða að leita burt af svæðinu til að lúka faggreinunum. Fræðslumiðstöð Vestfjarða mun bjóða nám í almennum bóklegum greinum næsta haust. Þetta eru danska, enska, íslenska og stærðfæði. Kennt verður seinnipart dags og á laugardögum.

Þessar greinar eru einnig opnar fyrir aðra en þátttakendur í raunfærnimatinu.

Eftir að hafa lokið bóknámi þurfa allir iðnnemar að gangast undir sveinspróf í sinni grein til að fá iðnréttindi.

Meðfylgjandi mynd er af hluta þátttakenda við afhendingu niðurstaðna raunfærnimatsins.
´Hluti hópsins sem fékk niðurstöður úr raunfærnimatinu

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is