Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Nýtt fyrirkomulag á fjarnámskeiðum EHÍ

Undanfarið hefur Endurmenntun Háskóla Íslands verið í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar um að þær bjóði upp á ákveðin námskeið frá EHÍ í gegnum fjarfundabúnað. Nú hefur verið tekið upp það fyrirkomulag að EHÍ auglýsir ekki sérstaklega fjarnámskeið, hins vegar geta símenntunarmiðstöðvar óskað eftir að fá námskeið í gegnum fjarfundabúnað og EHÍ reynir þá að verða við því ef lágmarksþátttaka fæst.

Fræðslumiðstöðin hvetur fólk til þess að skoða hvaða námskeið eru í boði hjá EHÍ og hafa svo samband ef það sér eitthvað sem vekur áhuga.  Meiri líkur eru á að hægt sé að fá námskeið ef fyrirvarinn er góður og aldrei minni en 10 dagar. Hægt er að skoða námskeiðaframboð EHÍ á www.endurmenntun.is

Þau námskeið sem aðrar símenntunarmiðstöðvar óska eftir að fá í fjarfund verða einnig auglýst hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is