|
||||
|
|
Fræðslumiðstöðin hefur opnað aftur eftir sumarleyfi. Eins og venjulega verður ágústmánuður notaður til þess að leggja loka hönd á skipulagningu vetrarstarfsins og ganga frá Námsvísi sem inniheldur upplýsingar um námsframboðið framundan og verður dreift um alla Vestfirði. Enn er hægt að koma á framfæri hugmyndum um námskeið sem gaman væri að bjóða upp á í vetur.
Fyrsta námskeiðið á skólaárinu sem nú er að hefjast verður haldið fimmtudaginn 18. ágúst en þar verður fjallað um fjölbreyttar matsaðferðir í fullorðinsfræðslu. Námskeiði er ætlað öllum þeim sem koma að kennslu fullorðinna. Það er haldið í boði Fræðslumiðstöðvarinnar og þátttakendum að kostnaðarlausu. Sjá nánar hér að neðan undir „tengt efni“.