Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vel heppnaður kynningarfundur

Raunfærnimatið - Bættu um betur fer vel af stað hér fyrir vestan. Á kynningarfundinn 12. febrúar mættu 18 manns, 16 karlar og 2 konur.

Edda Jóhannesdóttir verkefnastjóri frá IÐUNNI – fræðslusetri kynnti verkefnið og skipulögð voru svokölluð skimunarviðtöl, sem er fyrsti þáttur þessa ferlis. Föstudaginn 13. febrúar og laugardaginn 14. febrúar tóku þau Edda og Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi viðtöl við flesta þeirra sem á kynningarfundinum voru auk nokkurra annarra sem bættust í hópinn. Alls voru tekin slík skimunarviðtöl við 19 manns, sem skiptast á 10 iðngreinar. Þar af eru 8 greinar sem falla undir IÐUNA og 2 sem falla undir Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins. Vonast er til að sem flestir þátttakenda gangist undir mat á raunfærni í sínum iðngreinum og ljúki iðnnámi í framhaldi af því.

Í framkvæmdaáætlun sem sett hefur verið upp fyrir verkið er gert ráð fyrir að mati í öllum iðngreinum verði lokið fyrir næsta sumar. Því ættu þátttakendur að getað hafið nám næsta haust til að ljúka þeim áföngum sem þeir eiga eftir.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is