Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Reykhólar, Strandir og Dalir

Forstöðumenn Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi fóru saman um Reykhóla og Saurbæ mánudaginn 2. nóvember s.l. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér aðstæður á svæðunum og sýna sig og sjá aðra. Forstöðumennirnir hafa mikinn hug á að nýta hinn nýja veg um Arnkötludal til að auk samstarf Stranda, Reykhólahrepps og Dala í fullorðinsfræðslunni. Úr verslunar- og veitingaskálanum Skriðulandi í Saurbæn er nokkurn veginn jafn langt til Reykhóla, Hólmavíkur og Búðardals.

Í Saurbænum komu forstöðumennirnir við á Skriðulandi og í grunnskólanum í Tjarnarlundi (Auðarskóla). Á Reykhólum komu þeir við á Dvalarheimilinu Barmahlíð, í Reykhólaskóla og á hreppsskrifstofunni.
Arnkötludalur. Mynd úr bb.is

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is