Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Samstarf við Rafiðnaðarskólann

Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Rafiðnaðarskólinn ætla að taka upp formlegt samstarf um eftirmenntun í rafiðngreinum. Í því tilefni kom Sigurður Geirsson, skólastjóri Rafiðnaðarskólans til Ísafjarðar í gær, fimmtudaginn 11. júní 2009. Sigurður fundaði með fólki úr rafiðnaði og kynnti námsframboð hjá skólanum. Einkum benti Sigurður á greinar úr meistaranámi rafiðnaðar, sem skólinn kennir meistaranemum, en eru einnig gagnlegar sem eftirmenntun fyrir aðra. Góð mæting var á fundinn og hugur í fólki að auka eftirmenntun í greinunum.

Meðfylgjandi myndir eru af kynningunni.
Hluti af þátttakendum á fundinum
Hluti af þátttakendum á fundinum
Hluti af þátttakendum á fundinum

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is