Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sjö konur ljúka grunnnámi stuðningsfulltrúa

image

Föstudaginn 12. desember s.l. luku sjö vaskar konur frá Ísafirði og Bolungarvík svokölluðu grunnnámi stuðningsfulltrúa. Námið var á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar sem er í eigu BSRB. Framvegis – miðstöð símenntunar í Reykjavík sá um kennsluna en Fræðslumiðstöð Vestfjarða hélt utan um það á Ísafirði

Um er að ræða 160 kennslustunda nám. Það hófst í byrjun september og var kennt aðra hverja viku með hjálp fjarfundarbúnaðar.  Markmið stuðningsfulltrúanáms er að auka færni og þekkingu fólks á aðstæðum og þörfum fatlaðra með það fyrir augum að auka lífsgæði þeirra. Námið snertir fjölbreytta fleti sálar-, félags- og uppeldisfræði.

Eftir áramótin verður boðið upp á 80 kennslustunda framhaldsnám. Að því loknu fá þátttakendur starfsheitið stuðningsfulltrúi fyrir fatlaða. Stuðningsfulltrúanám er nauðsynleg undirstaða til að fara í brúarnám sem félagsliði. 

Fræðslumiðstöðin óskar þessum dugnaðarkonum til hamingju með áfangann!

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is