Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skemmtilegt námskeið fyrir jólin

Á Patreksfirði verður námskeiðið Sælkeragjafir og að leggja á borð þriðjudaginn 2. desember kl. 18.00.  Námskeiðið verður haldið í Sjóræningjahúsinu og kennari er Auður Ögn Árnadóttir. Hún mun sýna hvernig hægt er að útbúa sælkeragjafir í eldhúsinu heima og kemur með tilbúin dæmi, gjafakörfur og -kassar í ýmsum útfærslum ásamt frábærum hugmyndum um innpökkun og skreytingu. Einnig verður gagnleg sýnikennsla þar sem farið er yfir hvernig leggja eigi á borð eftir kúnstarinnar reglum. Mestur tími fer þó í borðskreytingar og einfaldar blómaskreytingar sem ættu að vera á allra færi. Sniðugt að notfæra sér þetta námskeið núna fyrir jólin og fá hugmyndir að ódýrum en fallegum jólagjöfum og hvernig hægt er að skreyta jólaborðið á skemmtilegan hátt.

Tengt efni
Sælkeragjafir og að leggja á borð- Patreksfirði
Tvískipt námskeið, annars vegar fjallað um hvernig hægt er að útbúa sælkeragjafir í eldhúsinu heima og hins vegar hvernig eigi að leggja á borð eftir kúnstarinnar reglum og útbúa borð- og blómaskreytingar.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is