Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skyndihjálp fjarri byggð

Fjölmargir dvelja eða ferðast fjarri byggð í sumarfríum, í sumarbústöðum, tjaldvögnum, í gönguferðum o.s.frv. Ekki er alltaf hægt að hringja í 112 og fá aðstoð fagfólks eða komast undir læknishendur á nokkrum mínútum ef óhöpp verða, slys eða sjúkdómar. Þá getur skipt öllu máli að kunna réttu viðbrögðin.

Fimmtudaginn 11. júní kl. 18:00-22:00 er boðið upp á námskeið um skyndihjálp í óbyggðum. Á námskeiðinu er lögð áhersla á viðbrögð við slysum og sjúkdómum þegar langt er í að aðstoð berist.  Farið verður í endurlífgun, ofkælingu, meðferð sára, bruna og beinbrota, bráðasjúkdóma og fleira.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rauða kross Íslands. Kennari er Hermann Níelsson. Þátttökugjald er 5.900 kr.

Tengt efni
Skyndihjálp fjarri byggð
Haldið í samvinnu við Rauða kross Íslands. Á þessu skyndihjálparnámskeið er lögð áhersla á viðbrögð við slysum og sjúkdómum þegar langt er í að aðstoð berist. Farið verður í endurlífgun, ofkælingu, meðferð sára, bruna og beinbrota, bráðasjúkdóma og fleira. Upplagt fyrir sumarbústaðafólk og aðra sem ferðast um landið fjarri byggð.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is