|
||||
|
|
Fjölmargir dvelja eða ferðast fjarri byggð í sumarfríum, í sumarbústöðum, tjaldvögnum, í gönguferðum o.s.frv. Ekki er alltaf hægt að hringja í 112 og fá aðstoð fagfólks eða komast undir læknishendur á nokkrum mínútum ef óhöpp verða, slys eða sjúkdómar. Þá getur skipt öllu máli að kunna réttu viðbrögðin.
Á þessu skyndihjálparnámskeið er lögð áhersla á viðbrögð við slysum og sjúkdómum þegar langt er í að aðstoð berist. Farið verður í endurlífgun, ofkælingu, meðferð sára, bruna og beinbrota, bráðasjúkdóma og fleira.
Námskeiðið er haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 á Ísafirði en hluti af verklegri kennslu fer fram utan dyra.
Námskeiðið stendur yfir þriðjudaginn 18. maí kl. og miðvikudaginn 19. maí kl. 19:00-22:00 báða daga. Kennari er Hermann Níelsson og verð er 9.500 kr.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rauða kross Íslands.