Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Smádýralíf - fjölbreytni og fegurð

imageFimmtudaginn 17. nóvember kl. 17 – 18 (kl. 5 – 6 síðdegis) verður annar fyrirlesturinn í námskeiðaröð á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Náttúrstofu Vestfjarða og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands, um náttúrufræðileg efni.

Dr. Þorleifur Eiríksson dýrafræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða mun þá fjalla um smádýrin í umhverfi okkar og þá undraveröld sem þau skapa. Þorleifur mun fjalla um hvaða dýr þetta eru – flokkun þeirra – helstu hópa – lífsferla – lifnaðarhætti – mikilvægi og hvort einhver þeirra beri að varast.

Fyrirlesturinn verður haldinn í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 en verður jafnframt sendur í gegnum fjarfundabúnað til annarra staða á Vestfjörðum þar sem áhugi er á að vera með.
Þátttökugjald eru 1.000 kr.

Ekki er þörf á að skrá sig, en það er þó unnt á vef Fræðslumiðstöðvarinnar, www.frmst.is, eða í síma 456 5025

Tengt efni
Náttúran - Fjölbreytni smádýralífs - fjarkennt um Vestfirði
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is