Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Starfsnám stuðningsfulltrúa

Starfsnám stuðningsfulltrúa hófst í Fræðslumiðstöð Vestfjarða í dag, mánudaginn 15. mars. Námið er frá Fræðslusetrinu Starfsmennt og er 160 kennslustundir. Næsta haust verður tekið 80 kennslustunda framhald. Námið er kennt í Reykjavík og fjarkennt á Ísafjörð.

Starfsnám fyrir stuðningsfulltrúa er ætlað starfsmönnum í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Námið er einnig opið þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi. Markmiðið er að auka færni og þekkingu starfsfólks á aðstæðum og þörfum fatlaðra til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Námið snertir fjölbreytta fleti sálar-, félags- og uppeldisfræði og er grunn- og framhaldsnámið metið til eininga í félagsliðabrú.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is