Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stefnumótunarnámskeiði frestað um tvær vikur

Námskeiði um stefnumótun sem halda átti 21. og 22. janúar var frestað um tvær vikur þar sem ekki var flugfært til Ísafjarðar þegar námskeiðið átti að vera. Önnur tilraun verður gerð dagana 4. og 5. febrúar.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta aðferðafræði og gagnast það öllum þeim sem koma að stjórnun stofnana, fyrirtækja eða félagasamtaka. Unnið verður með raunveruleg verkefni sem þátttakendur þekkja úr sínu daglega lífi.

Enn eru nokkur pláss laus og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst. 

Tengt efni
Stefnumótun
Stefnumótun er sú grein stjórnunarfræða sem lýtur að því að stýra öllum þáttum rekstrar að sama marki og þar með að virkja skipuheildina alla í þágu samræmdra markmiða. Dæmin sanna að stefnumótun getur gagnast skipuheildum af öllum stærðum og gerðum. Stofnanir, fyrirtæki og félagsamtök hafa um árabil nýtt sér aðferaðfræði af þessum toga með góðum árangri.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is