Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Stiklur - kennsla fullorðinna

Athugið að námskeiðinu er frestað til 3. og 4. nóvember n.k.
Fræðslumiðstöðin stendur fyrir námskeiðinu Stiklur- kennsla fullorðinna mánudaginn 6. október kl. 13-17 og þriðjudaginn 7. október kl. 12-16. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Sigrún Jóhannesdóttir hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífins og verður námskeiðið fjarkennt frá Ísafirði til Hólmavíkur og Patreksfjarðar.

Á námskeiðinu verður fjallað um gæðakröfur sem gerðar eru til kennara í fullorðinsfræðslu, aðferðir sem þeir geta beitt til að efla sig í starfi og koma sem best til móts við kröfur og þarfir fullorðinna nemenda. Þá verður fjallað um vinnuaðferðir við að undirbúa og skipuleggja nám/námskeið, hönnunarmódel og æfingar. Lögð verður áhersla á þátttöku, verkefnavinnu og hagnýta tengingu.

Námskeiðið er ætlað breiðum hópi sem sinnir fullorðinsfræðslu svo sem kennurum og leiðbeinendum sem vinna við símenntunarstofnanir, háskólakennurum, þeim sem sinna almennri mannauðsstjórnun innan fyrirtækja og stofnana og öðrum sem vinna að almennri uppbyggingu og eflingu fullorðinna.

Rétt er að vekja athygli á því að námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en mikilvægt er að skrá sig.

Tengt efni
Stiklur - kennsla fullorðinna - Fjarkennt frá Ísafirði
Námskeiðinu var frestað þann 6.10.2008. Sjá nýja dagsetingu. Fjallað um gæðakröfur sem gerðar eru til kennslu í fullorðinsfræðslu og vinnuaðferðir við að undirbúa og skipuleggja námskeið.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is