Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sturlunga í túlkun Einars Kárasonar

Leiðin inn í Sturlungu er torsóttari og villugjarnari en inn í flestar okkar helstu fornsögur. En þeim sem þangað komast opnast stórbrotinn og óviðjafnanlegur heimur með mögnuðum sögupersónum og dramatískum atburðum.

Endurmenntun HÍ býður upp á námskeið í gegnum fjarfundabúnað þar sem Einar Kárason rithöfundur fjallar um helstu viðburði og leikendur á sviði 13. aldar, með aðaláherslu á Örlygsstaðabardaga og langan aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu. Gott tækifæri gefst til umræðna og leiðbeint verður inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar.

Námskeiðið er kennt þrjú miðvikudagskvöld kl. 20:15-22:15 og hefst 11. nóvember. Mikilvægt er að áhugasamir skrái sig sem fyrst.

Tengt efni
Leiðarvísir að Sturlungu - fjarnámskeið frá EHÍ
Á þremur kvöldum endursegir Einar Kárason með eigin orðum helstu viðburði og leikendur á sviði 13. aldar, með aðaláherslu á Örlygsstaðabardaga og löngum aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu. Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá EHÍ.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is