|
||||
|
|
Tækniskólinn býður margvíslega endurmenntun fyrir atvinnulífið, auk þess að reka umfangsmikið grunnnám.
Hér er vakin athygli á tveimur námsleiðum, sem kanndar eru í fjarnámi og með tveimur staðbundnum lotum. Þetta eru Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu og Ljóstækni.
1. Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu – unnið í samstarfi við HR.
a. Útvegsrekstarfræði – fyrir starfsfólk í sjávarútvegi.
b. Flugrekstrarfræði – fyrir starfsfólk í fluggeiranum.
c. Almennt nám í rekstri og stjórnun – í boði fyrir alla með starfsmenntun og reynslu úr atvinnulífinu.
2. Ljóstækni – tvær línur. Annars vegar lýsingarfræði og hins vegar lýsingarhönnun.
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Tækniskólans, til hliðar við lýsingu námskeiðanna eða hér.
Tækniskólinn varð til við samruna nokkurra skóla, er störfuðu á sviði verk- og tæknimennta. Tækniskólinn er rekinn með nýrri hugmyndafræði en verið hefur í skólarekstri hérlendis m.a með því að hann starfar í 11 undirskólum sem hver fyrir sig hefur sérstakan skólastjóra og faglegt sjálfstæði. Við skólana starfa sérstök fagráð þar sem saman koma fulltrúar atvinnurekenda, launþega og fagkennara í hverri grein. Undirrskólarnir eru: Byggingatækniskólinn. Endurmenntunarskólinn. Fjölmenningarskólinn. Flugskóli Íslands. Hársnyrtiskólinn. Hönnunar og handverksskólinn. Raftækniskólinn. Skipstjórnarskólinn. Tæknimenntaskólinn. Upplýsingatækniskólinn og Véltækniskólinn.
Tólfta sviðið er svo Meistaraskólinn.
Tækniskólinn er einkarekinn og er rekstrarfélagið í eigu aðila atvinnulífsins, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík.
Starfsmenntasjóðurinn Sjómennt er hýstur við skólann. Að sjóðnum standa Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Sjómannasamband Íslands (SSÍ) og er hlutverk hans að styrkja sjómenn til náms og stuðla að aukinni menntun í sjávarútvegi.
Sjómennt styrkir m.a.;
• starfstengt nám og námskeið fyrir sjómenn!
• útgerðarfyrirtæki til námskeiðahalds fyrir sína starfsmenn!
• þarfagreiningar og nýjungar í námsefnisgerð!
• þróunarverkefni!
Fræðslumiðstöð Vestfjarða vill auka samstarfs sitt við Tækniskólann og koma þannig enn frekar til móts við atvinnulífið á Vestfjörðum.