Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Torf- og grjóthleðsla í Breiðavík

image
Í byrjun maí var haldið tveggja daga námskeið í torf- og grjóthleðslu í Breiðavík. Námskeiðið var ætlað öllum sem vildu fræðast um hvernig staðið var að þessu forna handverki.  Á námskeiðinu var gömul fjárrétt í Breiðavík sem byrjuð var að falla, rifin að hluta og endurhlaðin. Kennari á námskeiðinu var Guðjón Kristinsson torf- og grjóthleðslumeistari á Árbæ í Ölfusi. Guðjón er mikið náttúrubarn, fæddur og uppalinn á Dröngum á Ströndum.

Námskeiðið var að litlum hluta bóklegt en aðallega verklegt.  Nemendur fengu að spreyta sig og virkja í sér lista- og sköpunareðlið við hleðsluna.  Sambærileg námskeið hafa verið haldin hjá Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi undanfarin ár við góðar undirtektir og alltaf verið fullt á námskeiðin.  Ekki eru teknir nema tíu nemendur á hvert námskeið og var námskeiðið á Breiðavík fullt. 

Nemendur komu víða að af Vestfjörðum og tókst námskeiðið vel í alla staði.  Veðrið var með eindæmum hagstætt fyrir þetta námskeið, sólskin og blíða báða dagana og fóru nemendur heim rjóðir, sælir og þreyttir. Námskeiðið var haldið af Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við AtVest og Fræðslumiðstöð Vestfjarða.  Áhugi er á að endurtaka leikinn á næsta ári og halda sams konar námskeið á Vestfjörðum, ef næg þátttaka næst.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is