Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tvö enskunámskeið

Fræðslumiðstöðin hefur auglýst tvö enskunámskeið, annars vegar fyrir byrjendur og hins vegar fyrir þá sem eru lengra komnir.

Byrjendanámskeiðið hefst mánudaginn 25. janúar kl. 18:00-20:00. Námskeiðið er 24 kennslustundir og tekur 8 vikur. Það er ætlað fólki sem lítið hefur notað ensku síðan í grunnskóla og vill rifja upp og bæta við. Farið verður í lestur, málnotkun og hlustun.  Kennari á námskeiðinu er Anna Guðrún Edvardsdóttir.

Ef ekki næst í nógu stóran hóp til að fara af stað, stendur áhugasömum til boða að taka ensku með grunnmenntaskólanum ef þeir hafa tök á að mæta á þeim tíma. Enska í grunnmenntaskólanum er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 14:30-15:50.

Á námskeiði fyrir lengra komna verður lögð áhersla á talað mál með það að markmiði að auka orðaforða og efla sjálfstraust til að geta átt betri samskipti á ensku, hvort sem er í vinnu eða einkalífi.  Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa einhvern grunn í málinu og fer kennsla fram á ensku.

Kennari á námskeiðinu er Deborah Davies og verður kennt á miðvikudögum kl. 18:00-20:00. Námskeiðið er 24 kennslustundir og tekur 8 vikur.

Tengt efni
Enska fyrir lengra komna - talmál
Námskeið fyrir þá sem hafa grunn í ensku en vilja ná betri tökum á málinu. Lögð verður sérstök áhersla á talað mál með það að markmiði að auka orðaforða og efla sjálfstraust í samskiptum á ensku. Kennsla fer fram á ensku.
Enska fyrir byrjendur
Góð upprifjun fyrir þá sem hafa lítið notað ensku síðan í grunnskóla. Farið verður í lestur, málnotkun og hlustun við ýmsar aðstæður.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is