Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Þuríður Sigurðardóttir í Vísindaportinu

Þuríður Sigurðardóttir starfsmaður Fræðslumiðstöðvarinnar verður í Vísindaportinu hjá Háskólasetri Vestfjarða í dag, föstudagsins 24. september. Þar mun Þuríður fjalla um verkefni á vegum Nordplus Voksen sem Fræðslumiðstöðin er þátttakandi í. Nordplus Voksen er samnorræn menntaáætlun sem veitir styrki til fullorðinsfræðslu, en verkefnið sem um ræðir kallast Nordic+ Senior Golden Examples. Auk Íslands taka þátt í verkefninu Finnland, Litháen og Noregur. Tilgangur þess var að safna saman þekkingu um árangursríkar kennsluaðferðir og námskeið í fullorðinsfræðslu, sérstaklega með eldri borgara í huga.

Í erindi sínu mun Þuríður fjalla um aðdragandann að verkefninu og samstarfsaðilana, þær kannanir sem framkvæmdar voru, niðurstöður þeirra og gerða samanburður milli landa. Einnig segir hún frá námskeiði sem Fræðslumiðstöðin hannaði og hélt í tengslum við verkefnið og námskeiðum sem hin löndin héldu. Að lokum verður farið yfir þær niðurstöður sem verkefnið skilaði af sér.

Þuríður Sigurðardóttir er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og starfar hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið í Hnífsdal í 7 ár.

Vísindaportið fer fram í kaffisal Háskólaseturs Vestfjarða og er öllum opið. Það hefst klukkan 12.10.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is